„stóri skúrk­ur­inn var krón­an“

Björgólf­ur Thor Björgólfs­son at­hafnamaður seg­ir stóra skúrk­inn í hrun­inu hafa verið ís­lensku krón­una. Hann hafi sjálf­ur litið í eigi barm, gagn­rýnt sjálf­an sig og beðist af­sök­un­ar á sín­um hlut. Aðrir hafi hins veg­ar ekki leikið það eft­ir. Í dag séu hættu­merki á lofti en lær­dóm­ur­inn sé lít­ill. Þetta kem­ur fram í nýj­um pistli sem hann birt­ir á heimasíðu sinni í dag.

„Í þeirri miklu þenslu, sem átti sér stað á ör­fá­um árum fram að hruni, var ým­is­legt sem leiddi til þess að bank­arn­ir stækkuðu fram úr hófi og voru orðnir óviðráðan­leg­ir fyr­ir lítið hag­kerfi þegar að þrengdi haustið 2008. Allt blas­ir það við núna. Bank­arn­ir höfðu nær ótak­markað aðgengi að ódýru fé. Minnsti gjald­miðill heims gat ekki staðið und­ir þeirri vaxtamun­ar­stefnu, sem rek­in var á Íslandi,“ seg­ir Björgólf­ur meðal ann­ars um krón­una.

„Það er drama­tískt að leita að aðalleik­ur­um í hrun­inu í hópi banka- og viðskipta­manna, en stóri skúrk­ur­inn var krón­an. Þar hafa menn ekk­ert lært, með nú­ver­andi há­vaxta­stefnu og verðtrygg­ingu, sem slig­ar al­menn­ing.“

„Þetta var erfitt ferðalag“

Hann seg­ist hafa litið í eig­in barm í kjöl­far hruns­ins og horft gagn­rýn­in á at­hafn­ir sín­ar. Hans leið til að tak­ast á við bar­átt­una hafi verið að skrifa bók þar sem hann fór yfir sögu sína í viðskipt­um; baslið, æv­in­týra­leg­an upp­gang, of­ur­gróða, mis­tök­in sem hann gerði, hrunið sjálft og hvernig hon­um tókst að vinna úr hremm­ing­un­um. „Þetta var erfitt ferðalag, en ég tel það hafa styrkt mig og hjálpað mér að tak­ast á við reiðina og bit­ur­leik­ann, sem ég fann fyr­ir í kjöl­far hruns­ins.“

Björgólf­ur seg­ir einnig mik­il­vægt að skoða hvað gerðist eft­ir hrun. Þar sé hann stolt­ast­ur af skulda­upp­gjöri við alla sína lána­drottna, en hann hafi verið í gríðar­mikl­um per­sónu­leg­um ábyrgðum þegar hrunið skall á. „Þannig borgaði ég yfir 100 millj­arða króna til ís­lenskra banka í bein­hörðum pen­ing­um, meira að segjaí er­lendri mynt. Marg­falt hærri upp­hæðir voru greidd­ar til er­lendra banka.“

Nánar á

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2018/10/08/stori_skurkurinn_var_kronan/