Vegagerðin hefur lokað þjóðvegi 1 um Skeiðarársand og í Öræfasveit vegna hvassviðris. Vindhviður á svæðinu mælast nú yfir 40 metrar á sekúndu. Búist er við að lokunin standi fram á miðjan dag. Vegagerðin segir að hnútarnir sem standi af Öræfajökli verði í dag 40 til 50 metrar á sekúndu og stórvarasamir ferðafólki. Þá verði sandfok á Skeiðarársandi.
Einnig eru sterkar hviður í Mýrdal og undir austanverðum Eyjafjöllum frá morgni og fram eftir degi, allt upp undir 40 metrar á sekúndu.