Stórfyrirtækin taka yfir landbúnaðinn

Í ítarlegri fréttaskýringu á Hrinbraut kemur fram hvernig stórfyrirtæki eiga mestra hagsmuna að gæta í íslenskum landbúnaði. Fréttatíminn hafði áður skrifað fréttaskýringu um þetta sama efni og byggja 30 mínútur sína fréttaskýringu á grein Fréttatímans.

Brynhildur Pétursdóttir, þingmaður Bjartrar framtíðar og fyrrverandi ritstjóri Neytendablaðsins, segir í þætti kvöldsins að hún sé ekki sátt við verðandi búvörusamning og munu gera eins miklar atugasemdir og hún kemur við þegar málið verður rætt á Alþingi.

Fréttaskýringarþátturinn 30 mínútur eru á dagskrá klukkan 21:15 í kvöld og er hluti af umræðuþættinum Þjóðbraut sem Sigurjón M. Egilsson þáttastýrir.