Matarbloggarinn Harpa Kristbergsdóttir, sem heldur úti síðunni Eldhúsatlasinn, lenti í heldur betur hlægilegu atviki í ræktinni sem hún sagði frá á Facebook-hópnum Meðal Jón/ína.
Harpa var stödd í sánunni þegar hún sá virðulega konu koma fram á sundbolnum einum fata. Konan varð ekki vör við Hörpu og þar sem hún taldi sig eina vera eina gerði hún nokkuð sem vakti upp stór augu Hörpu:
„Hún horfði í kringum sig og fullvissaði sig um að enginn væri að horfa, sveigði sig eins og rækju og trommaði á magann á sér - Saltkjöt og baunir! Túkall! - rétti svo úr sér og labbaði út í pottinn,“ skrifar Harpa.
Hún lýsir atvikinu sem stórkostlegu og segist hafa liðið eins dýraatferlisfræðingnum góðkunna David Attenborough:
„Algjörlega grunlaus um að þarna stóð ég og fylgdist með eins og David Attenborough, brosandi út í annað. Meyr til augnanna. Vitandi að ég varð vitni að einhverju stórkostlegu.“
Færsla Hörpu hefur vakið mikil viðbrögð og þegar hafa nærri 200 manns „líkað“ við hana.