Stórfelldur niðurskurður hjá rúv?

Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri segir að enn sé þess beðið hvort útvarpsgjald verði óbreytt. Ef það verði lækkað niður í 16.400 kr. um áramótin missi stofnunin af tekjum sem nemi hundruðum milljóna. Það geti ekki þýtt annað en stórfelldan niðurskurð þjónustu og í dagskrá.

Frá þessu segir Morgunblaðið í dag. Blaðið ræðir við útvarpsstjóra og kemur fram að stjórnendur Rúv bíði enn ákvörðunar rókisstjórnar og Alþingis um gjaldið og framtíð Rúv.