Allt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út vegna stórbruna í húsi Icewear í Miðhrauni í Garðabæ.
Mikill eldur er í byggingunni og stendur upp úr þakinu á hluta hennar. Svæðið hefur verið girt af og bakvakt slökkviliðsins verið kölluð út. Eldurinn virðist ekki hafa náð að teygja sig í önnur hús á svæðinu.
Eldurinn gaus upp að því er virðist um eða rétt fyrir klukkan átta í morgun og haft er eftir sjónarvottum á Vísi.is og Mbl.is að sprenging hafi orðið í húsinu og að fólk hafi hlaupið út úr því rétt eftir hana.
Samkvæmt RÚV hafði slökkvilið skömmu áður verið kallað að bruna í Hafnarfirði skammt hjá, sem reyndist minniháttar.
Mikinn reyk leggur vestur af brunanum og út á Álftanes og hefur slökkviliðið óskað eftir því að íbúar á Álftanesi loki gluggum og hækki hita á ofnum.
Í byggingunni að Miðhrauni 4 eru fyrirtækin Icewear og Geymslur.is til húsa, auk þess sem Marel er þar með skrifstofur.