Stóraukning í útlánum lífeyrissjóða

Íslenskir lífeyrissjóðir lánuðu sjóðfélögum meira á síðasta ári en nokkru sinni fyrr og voru útlán ársins 2017 meiri en útlán sjóðanna næstu fimm ár þar á undan samanlagt, samkvæmt tölum Seðlabanka Íslands. Morgunblaðið greinir frá þessu í dag.
 
Lífeyrissjóðirnir lánuðu sjóðfélögum 139 milljarða króna á síðasta ári, um 57 prósentum meira en árið 2016, sem einnig var metár í útlánum, og fimmfalt meira en árið 2015.
 

Meirihluti þessara lána, rúm 70 prósent, var á formi verðtryggðra lána, en tæp 30 prósent voru óverðtryggð lán. Fjöldi lánveitinga jókst einnig töluvert. Alls voru veitt ríflega 7.600 lán í fyrra en árið áður voru lánveitingar lífeyrissjóðanna til sjóðfélaga ríflega 5.600. Þá hefur meðallánveitingin einnig hækkað töluvert í krónum talið; var 18.2 milljónir í fyrra en 15,7 milljónir ári 2016. Þetta svarar til 15,8 prósenta hækkunar að meðaltali.

Útistandandi heildarútlán lífeyrissjóðanna voru 335 milljarðar um áramótin og hafa aldrei verið meiri, segir í frétt Morgunblaðsins. Þar kemur hins vegar einnig fram að þótt upphæðin sé há, þá er hlutfall útlána af eignum sjóðanna ekki mjög hátt í sögulegu samhengi, eða 8,6 prósent, sem skýrist af sterkri eignastöðu sjóðanna.