Stóraukin aflaverðmæti upp úr sjó

Verðmæti afla upp úr sjó nam tæpum 16,2 milljörðum í febrúar sem er 41,7% hærra en í febrúar á síðasta ári að því er fram kemur í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands.


Þar munar mestu um aflaverðmæti loðnu sem nam tæpum 6 milljörðum og jókst um um 4 milljarða samanborið við febrúar 2014. Aflaverðmæti þorskaflans nam 6,2 milljörðum í febrúar sem er ríflega 24 prósent aukning miðað við sama mánuð 2014.


Aflaverðmæti á tólf mánaða tímabili frá mars 2014 til febrúar 2014 nam 142,6 milljörðum og er nánast óbreytt miðað við tólf mánaða tímabil árið áður. Á tímabilinu hefur vermæti botnfisks og uppsjávarafla aukist en á móti hefur aflaverðmæti flatfisks og skel- og krabbadýra dregist saman.


Verulegur uppgangur hefur verið í sjávarútvegi undanfarin misseri enda eru mörg stærstu fyrirtækin að skila metafkomu þessa dagana, svo sem eins og HB Grandi sem frægt er, en það fyrirtæki er að fjárfesta í fimm nýjum fiskiskipum um þessar mundir.