Stóraukin aðsókn í kennaranám

Rúmlega 550 nýnemar hófu nám sitt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands í vikunni, en kennaranám er einnig í boði við þrjá aðra háskóla hér á landi. Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra heimsótti Menntavísindasvið í gær og ræddi við nýnemahópinn. 

Umsóknum um kennaranám fjölgaði verulega milli ára, alls um rúmlega 200 á landinu öllu. Hlut­falls­lega var aukn­ing­in mest hjá Lista­há­skóla Íslands þar sem um­sókn­um um nám í list­kennslu­deild fjölgaði um 170% milli ára, en um­sókn­um um grunn­nám í grunn­skóla­kenn­ara­fræðum við Há­skóla Íslands fjölgaði um 45%. Karl­kyns um­sækj­end­um fjölg­ar í þeim hópi en um helm­ingi fleiri karl­ar sóttu um grunn­skóla­kenn­ara­nám í Há­skóla Íslands en í fyrra og þre­falt fleiri í nám í leik­skóla­kenn­ara­fræðum. Þá fjölg­aði einnig um­sókn­um um nám leiðsagna­kenn­ara.  

„Það er mér mikið fagnaðarefni að vísbendingar eru um að aðgerðir sem við réðumst í sl. vor til þess að fjölga kennurum séu þegar farnar að skila árangri. Umsóknum um kennaranám fjölgar verulega milli ára og einnig gekk mjög vel að útvega kennaranemum á lokaári launaðar starfsnámsstöður. Til þess að mæta áskorunum framtíðarinnar þurfum við enn fleiri fjölhæfa og drífandi kennara og það er einkar ánægjulegt að fleiri íhugi nú að starfa á þeim vettvangi,“ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.