Stórauka má verðmæti útflutts sjávarfangs

Í erindi Önnu Kristínar Daníelsdóttur sviðsstjóra rannsókna og nýsköpunar hjá MATÍS var fjallað um bestu nýtingu haftengdra tækifæra.

Á unadförnum árum hefur Íslendingum tekist að margafalda verðmæti sjávarfangs.

Á sama tíma hefur veiddum tonnum fækkað.

Þetta á einkum við um þorskinn sem er verðmætastur allra tegunda.

Árið 2016 var útflutningsverðmæti landaðs þorskafla 3,15 dollarar á kíló sem er 4,6 sinnum meira verðmæti en árið 1981.

Þorskaflinn skilaði 2,6 sinnum meiri verðmætum en 1981 þó aflinn 2016 hafi einungis verið 57% af afla ársins 1981.

[email protected]