"Eitt brýnasta úrlausnarefni samfélagsins er að stórauka byggingar á ódýru íbúðahúsnæði," sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins á Iðnþingi í dag, en þar var hún endurkjörin til eins árs. Hún benti þar á að margt þarf að breytast svo af þessu geti orðið; lóðaverð sé enn alltof hátt, einkanlega í Reykjavík og þá þurfi að breyta nýrri byggingareglugerð sem sé alltof íþyngjandi og hafi í raun hækkað byggingarkostnað um 10 prósent - og það bitni einkum á ungu fólki sem reyni að kaupa sína fyrstu íbúð.
Byggingariðnaðurinn tók dýfu strax eftir hrun, sem sést best á því að ríflega fjögur þúsund íbúðir voru reistar árið fyrir hrun, en 14 árinu á eftir. Byggingarmarkaðurinn hefur hins vegar ekki tekið nægilega við sér á allra síðustu árum sem veldur húnæðiseklu og alltof háu leiguverði.
Stórátak þarf í húsbyggingum
Fleiri fréttir
Nýjast