Stórar rútur tefja umferðina

Straumur erlendra ferðamanna til Ísland eykst stöðugt og er nú svo komið að jafn margir túristar koma hingað til lands um háveturinn og var á háannatíma yfir sumarið 2006. Þessi sprenging í fjölda erlendra ferðamanna hefur gert það að verkum að umferð með ferðafólk í kringum helstu hótelin í miðborg Reykjavík hefur aukist til mikilla muna - og hefur margsinnis stappað nærri umferðarteppu í nokkrum götum í Kvosinni á morgnana, á sama tíma og börn og fullorðnir eru að fara í skóla og á vinnustaði.
Ástandið hefur verið einna verst í kringum hornið á Suðurgötu og Túngötu, en nokkur hótel standa þar nærri við þröngar einstefnuakstursgötur. Hafa vagnstjórar Strætó oftsinnis ratað í vandræði af þessum sökum, enda er langferðabílum iðulega lagt á miðri götu á meðan verið er að hleypa fólki út eða koma því í rúturnar sem vanalega tekur margar mínútur.