Stóra stjarnan og kerlingafjöll

Framtíð og uppbygging í Kerlingafjöllum

Mikil umræða er nú sem fyrr um framkvæmdir á miðhálendinu. Einn af þeim stöðum sem er undir í þessari umræðu – og sitt sýnist hverjum – eru Kerlingafjöll. Þessi heillandi fjallaklasi rétt suðvestur af Hofsjökli er þriðja stærsta háhitasvæðið á hálendinu. Hæstu fjöll eru um 1200 til 1500 metra há, aðallega Líparítfjöll en einnig lægri móbergsfjöll.

Páll Gíslason, framkvæmdastjóri Fannborgar ehf sem rekur ferðaþjónustu í Kerlingarfjöllum kemur í Ferðalagið. Fannborg hefur staðið í ýmsum framkvæmdum og vill reisa stórt gistihús í stað minni og eldri húsa sem þar eru nú. Hann segir nauðsynlegt vegna umhverfisverndarsjónarmiða að hafa alla gesti á einum stað en ekki dreifða um svæðið eins og nú. Um 22 þúsund ferðamenn komu í fyrra.

Dill fær stóru stjörnuna

Hin stórskemmtilega saga að baki þess að veitingastaðurinn Dill á horni Hverfisgötu og Ingólfsstrætis fékk Michelin-stjörnu á dögunum, fyrstur íslenskra veitingahúsa, verður sögð í þættinum Ferðalaginu á Hringbraut í kvöld.

Þá tekur Sigmundur Ernir hús á Ragnari Eiríkssyni, yfirkokki staðarins, en hann hefur haft ástríðu fyrir maatseld allt frá því hann byrjaði í hasarnum og adrenalínsflæðinu á Pizzahúsinu fyrir tuttugu árum eða svo - og eftir það leiddi eitt af öðru, matreiðslunám hér heima og sjö ára reynsluríkur tími í Danmörku frá hruninu hér heima, en siðustu þrjú árin hefur Ragnar gert garðinn frægan á Dill, nú síðast með þessum einstaka árangri að öðlast eftirsóttustu stjörnu matreiðslugeirans.

Vasagangan

Linda hittir tvær skíðakonur vegna hinnar árlegu Vasagöngu í Svíþjóð þar sem þátttakendur fara á gönguskíðum 90 km leið. Anna Sigríður Vernharðsdóttir fór fyrir tveimur árum í þessa goðsagnakenndu göngu og Signe Viðarsdóttir var að undirbúa sig fyrir ferðina sem hún leggur í núna í fyrsta sinn. Keppnin er á sunndaginn, eða 5.mars.

 

Ferðalagið er í umsjón Lindu Blöndal og Sigmundar Ernis og er frumsýnt á miðvikudagskvöldum kl.20.