Stóra prófið er hjá verkalýðsforystunni

Kaflaskil eru í kjaraviðræðum núna. Verkalýðsforystan vill sjá á spil ríkisstjórnarinnar áður en lengra er haldið. Sigurjón M Egilsson ritstjóri Miðjunnar og Valur Grettisson ritstjóri Reykjavík Grapevine, þess blað sem erlendir ferðamenn lesa helst á Íslandi eru gestir Sigmundar Ernis að þessu sinni.

„Ég er meira spenntur fyrir því að sjá um hvað var samið sem ég hef ekki séð og hvort að hin nýja verkalýðsforysta hafi staðist prófið“, segir Sigurjón og stóra spurningin sé hvort að hún standist þær væntingar sem til þeirra eru gerðar og þau sjálf mæli fyrir því sem fékk fólk til að treysta á þau um. „Ég vona að þau sigri eða standist þessar væntingar“, segir Sigurjón.

Vænta má breytingum í skattakerfinu og bótakerfinu sem snýr að lægst launaða fólkinu svo það sitji ekki eftir þegar höfrungarhlaupið byrjar.

„Ja, fjámálaráðherra er þekktur fyrir að tryggja stöðu þeirra verst settu“, segir Sigurjón. En hvort fjármálaráðherra geti það áfram segir Sigurjón:  „Ja hann getur gert það sem hann vill, hann hefur gert það hingað til“. Hvort verkalýðshreyfingin geti snúið fjármálaráherra, Bjarna Benediktssyni segist Sigurjón mest spenntur að sjá. „En ég er ekkert of bjartsýnn á það. Hann er svona klókur sko, hann er klókur. Hann lætur reikna fyrir sig þetta ómögulega í von um að aðrir sjái ekki villurnar“.

En er klókt að setja stöðuna núna upp í hendurnar á ríkisvaldinu? Ríkisstjórnin neyðist núna til að sýna á sín spil ella fer allt aftur í háaloft og ríkisstjórninni verður mögulega kennt um.

„Síðast þegar þetta var reynt kom einmitt ríkisstjórnin með skattalækkunarútspilið sitt sem var ekki vinsælt og varð til þess að setja umræðurnar í algjöran lás. Ég er ekkert sérstaklega bjartsýnn á að ríkisstjórnin sé eitthvað fara að taka allt of vel í þetta allt saman, það má vera að þau komi með eitthvað svona hálfvolgar hugmyndir um húsnæðismál til þriggja til tíu ára“, segir Valur. „En ég er sammála sem að Sigurjón segir að stóra prófið er einmitt að sjá hvað í raun verkalýðsfélögin fá útúr þessum samningum“, bæti hann við og sérstaklega í ljós þess að nú fór Wow á hausinn og auðvelt sé að spýta all verulega í lófana eftir að það gerist og þar með verði samningstaðan augljóslega þrengri.

Nýr tónn er í viðræðunum. Talað um styttingu vinnuvikunnar. Fólk fór til Noregs eftir hrun og kynntist styttri vinnutíma en er hér á Íslandi.  Kulnun í starfi er líka mikið rætt.

Sigurjón minnist á húsnæðismálin sérstaklega. „Hversu galið er það í raun og veru að verkalýðsforystan þurfi að vera eitthvað fórna kröfum sínum til þess að hið opinbera standi sig í stykkinu? Þetta á ekkert að koma verkalýðshreyfingunni við að það séu til íbúðir í landinu og það er verið að tala um loðnubrestinn og áhrifin af honum útúm allt en húsnæðisbresturinn? Hvernig er hann búinn að leika þann hóp sem að er orðinn fyrir honum?“ , segir Sigurjón og húsnæðisbresturinn hafi leikið fólk verr en loðnubrestur hefur leikið fólk því hann sé tímabundinn og af náttúrulegum völdum. Húsnæðisbresturinn sé af manngerðum völdum. „Og mér finnst mjög lélegt að við þurfum að gefa eftir af launum allra til þess hér verði til íbúðir til að fólk eigi einhvers staðar heima. Þetta er bara alveg galið“, bætir Sigurjón við.