Stóra flugmiðamálið: icelandair brást við - fékk afsökunarbeiðni og verkferlar bættir

Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar greindi frá því á dögunum að hún væri á leið til Þýskalands í lok mánaðarins með Icelandair. Inga Björk er einnig fyrrverandi varaþingmaður og greindi hún frá því að aðstoðarkona hennar hefði forfallast vegna óvæntra og ófyrrséðra aðstæðna. Inga Björk þurfti því að fá aðra aðstoðarkonu til að hlaupa í skarðið.

Inga hefur NPA aðstoðarfólk sem aðstoða hana við athafnir daglegs lífs vegna hreyfihömlunar hennar. Þegar hún óskaði eftir að nafninu á flugmiðanum yrði breytt var henni tjáð af starfsmanni Icelandair að slíkt væri ekki mögulegt og að hún yrði að leggja út fyrir nýjum miða.

Icelandair hafði samband og búið er að kippa stóra flugmiðamálinu í liðinn. Inga greinir svo frá því í dag að Icelandair hafi ákveðið að breyta reglunum hjá fyrirtækinu. Hafði starfsmaður flugfélagsins samband við Ingu í dag. Hefur Ingu verið hrósað fyrir að berjast fyrir að fá þetta lagað sem og Icelandair fyrir að bregðast við. Hún þakkaði svo fyrir stuðninginn og þeim sem höfðu fyrir hennar hönd haft samband við Icelandair:

„Búið er að kippa stóra flugmiðamálinu í liðinn. Ég fékk afsökunarbeiðni og laga á verkferla í kjölfarið. Þannig að fólk með NPA aðstoðarfólk, þið getið fengið að breyta nafni á flugmiðum!“