Jarðskjálfti að stærð 4.2 mældist klukkan tólf í dag um 3,5 kílómetra frá Kleifarvatni og fjöldi eftirskjálfta fylgdu í kjölfarið.
Kemur þetta fram í tilkynningu frá Veðurstofu, en nokkrir af eftirskjálftunum mældust yfir þrír á stærð. Skjálftinn fannst víða á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesinu.
Það hafa um 1200 skjálftar mælst síðan á miðnætti, en í heildina hafa mælst rúmir tíu þúsund skjálftar frá því að jarðskjálftahrinan byrjaði þann 30. júlí.