Meirihlutinn vill ekki lög á verkfall

Stór hluti landsmanna er andvígur því að setja lög á verkfall opinberra starfsmanna innan heilbrigðisgeirans ef marka má óformlega könnun sem verið hefur aðgengileg lesendum á hringbraut.is á síðustu dögum.


Samkvæmt könnuninni eru þrír af hverjum fjórum andvígir því að stjórnvöld aflétti verkfallinu með lagasetningu en fjórðungur þátttakenda í sömu könnun er því hlynntir.


Verkfallsaðgerðir margra stétta á Landspítalanum síðustu vikur hafa verið í hámæli íslenskrar þjóðmálaumræðu um margra vikna skeið, en ótímabundið verkfall félagsmanna  BHM innan heilbrigðisgeirans hófst í annarri viku apríl og sér engan veginn fyrir endann á því, enda eru síðustu tíðindi af samningaborðinu langt í frá uppörvandi.


Hvað sem lengd og áhrifum verkfallsins líður virðist almenningur engu að síður styðja aðgerðir BHM ef eitthvað er marka téða könnun.