Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir að sér lítist mjög vel á að ríkið yfirtaki Íslandsbanka. Þar með sé stór hluti vandans leystur sem geri stjórnvöldum auðveldara að aflétta fjármagnshöftum.
Þetta kom fram í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins. Þar sagði einnig að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra væri ekki hrifinn af þeirri hugmynd að ríkið ætti tvo banka, enda væri þar um að ræða um 25% af landsframleiðslu.
Bjarni nefndi að kröfuhafar í Glitni teldu best að mæta stöðugleikaframlagsskilyrðum með því að ríkið eignist bankann. Seðlabankinn verði nú að leggja mat á hið nýja útspil en með lögunum í sumar um afnám gjaldeyrishafta hafi stjórnvöld höggvið á hnútinn sem sýni „hve nauðsynlegt var að stíga inn í þetta ferli“ eins og fjármálaráðherra orðaði það.