Mikill meirihluti landsmanna hyggur á utanför á sumri komanda samkvæmt óformlegri könnun sem verið hefur á forsíðunni á hringbaut.is síðustu daga. 64% þátttakenda segjast staðráðin í að halda utan á næstu mánuðum, 15% telja það líklegt, en rétt liðlega fimmtungur þátttakenda í könnuninni segist ætla að halda sig heima við yfir sumarmánuðina.
Miðað við sambærilegar kannanir á sumarferðahug landsmanna frá fyrri árum er hlutfall þeirra sem ætla utan mjög hátt í þessari könnun. Það kemur ef til vill ekki óvart, því veturinn sem er að kveðja hefur veerið landsmönnum einstaklega módrægur í veðurfari, svo mjög reyndar að hann fer auðveldlega í sögubækur hvað ófærð varðar.
Fyrstu 70 daga þessa árs gaf Veðurstofan út stormviðvörun í 56 daga. Það merkir með öðrum orðum að fyrsta hálfa þriðja mánuð ársins var vindur aðeins 14 sinnum undir 20 m/s.
64/15/21