Stór áform með helguvíkurhöfn

Halldór Hermannsson hafnarstjóri Reykjaneshafna segir mikið framundan í uppbyggingu við Helguvíkurhöfnina.  Halldór greinir frá þeim áformum í þætti um Reykjaneshafnir. Þátturinn er einn af þáttunum um hafnir landsins.

Meðal Reykjaneshafna er Keflavíkurhöfn, Njarðvíkurhöfn, Helguvíkurhöfn, smábátahöfnin í Gróf og í Höfnum er lítil smábátahöfn. 

Halldór segir að á komandi fjórum til fimm árum verið bætt við a.m.k. 160 metrum í viðlegukanta auk þess að áoform séu um að bæta við 135 metra kanti í sunnanverðri höfninni sem væri þá mjög hentugur varðandi inn og útflutning á gámum til dæmis. Bærinn muni stækka svæðið undir gámavöll. Í fyrsta skrefi sé að koma með gámavöll upp á 8000 fermetra en möguleikar séu á að fimmfalda þá stærð á komandi árum.

Helguvík hefur 4,5 ferkílómetra yfir að ráða og nálægðin við flugstöðina er verðmæt. Allt eldsneyti fyrir alþjóðafluvöllinn og reyndar meira en það fer í gegnum Helguvíkurhöfn, segir Halldór. Umfram annað sé horft sé til stóriðju í dag og í framtíðinni og þá flutninga til og frá höfninni.

 

Í þættinum er rætt við: Halldór Hermannsson hafnarstjóri Reykjaneshafna. Aðalsteinn Björnsson sem vinnur við hafnarvogina í Keflavík, Jón Pétursson einn af þremur hafsögumönnum Reykjaneshafna, Pétur Jóhannsson fyrrverandi hafnarstjóri Reykjanesbæjar og Jóhannes Jóhannesson, fyrrum skipstjóra í Keflavík.