Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar skrifar í pistli að standa eigi vörð um sérstöðu íslensks sjávarútvegs sem felst í því að sjávarútvegurinn sé ekki niðurgreiddur af almannafé. Hún gagnrýnir þingmann Framsóknar og spyr hvaðan Morgunblaðið hafi þær heimildir að innan ríkisstjórnarflokkanna sé vilji til að grípa inn i sjómannaverkfallið.
Hanna Katrín Friðriksson skrifar pistil á Eyjuna undir fyrirsögninni Gamlir draugar komnir á stjá: „Íslenskt samfélag hefur á undanförum áratugum fært ákveðnar fórnir til að gera sjávarútveginn samkeppnisfæran, sjálfbæran og óháðan beinni ríkisaðstoð. Það væri mikil eftirsjá að þessari sérstöðu. Þess vegna væri óráð að endurvekja gamla drauga og taka útgerðina út fyrir sviga í íslensku atvinnulífi þegar kemur að því að vinnuveitendur og launþegar semja um kaup og kjör”,stendur m.a. í pistlinum sem birtur var föstudaginn 3.febrúar, sama dag og síðasti samningsfundur rann út í sandinn.
Hún skýtur föstum skotum að Framsóknarflokknum: „Það er merkilegt að sjá þingmann Framsóknarflokksins skjóta á ráðherra sem hefur verið í embætti sjávarútvegsráðherra í tæpan mánuð. Framsóknarflokkurinn fór með þennan málaflokk í þrjú og hálft ár, en sjómenn hafa verið samningslausir í 6 ár. Er ekki hér verið að kasta steinum úr glerhúsi? Og fyrir forvitni sakir, hverjar eru aðgerðirnar sem þingmaðurinn er að leggja til af hálfu stjórnvalda?” og þar væntanlega við Lilju Alfreðsdóttir, þinmann Framsóknar sem gagnrýnir stjórnvöld fyrir að aðhafast ekkert í sjómannadeilunni.
Í lok vikunnar verður vinnu sjávarútvegsráðherra lokið við að leggja mat á þjóðhagsleg áhrif verkfallsins semm hefur stðið í 8 vikur.
Hanna Katrín bendir einnig á að það sé yfirlýst stefna stjórnvalda að aðilar á vinnumarkaði leysi kjaradeilur sín á milli án inngripa ríkisvaldsins. Hins vegar virðist sem verið sé að grafa undan þeirri stefnu. „Ef marka má ónefnda heimildarmenn Morgunblaðsins er nú komið annað hljóð í strokkinn”, skrifa hún.