Stöndum með lýðræði, frelsi og mannúð!

\"Með bandalagi vestrænna ríkja í dag er verið að reyna að koma í veg fyrir að hörmungar sem hefði ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir þjóð sem hefur reynt að feta slóð lýðræðis og frelsis í samskiptum og viðskiptum.\"

Á þenna veg skrifar Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka iðnaðarins í aðsendri grein í Markaðnum í dag undir heitinu Viðskiptafrelsi fjölgar tækifærum. Skrif hennar má skilja sem herhvöt á þeim tímum þegar ýmsir stjórnmálamenn, núverandi og fyrrverandi, virðast kikna í hnjánum og taka stundargróða í Rússaviðskiptum fram yfir langtímahagsmuni í utanríkismálum.

\"Ísland er ungt lýðræðisríki sem,\" skrifar Guðrún áfram \"sem hefur allar götur frá stofnun lagt áherslu á mannréttindi og rétt manna til athafna. Á þeim rúmu sjötíu árum sem Ísland hefur staðið sjálfstætt höfum við borið gæfu til að eiga í nánum samskiptum og viðskiptum við aðrar þjóðir. Á því byggist velferð okkar,\" bætir formaður Samtaka Iðnaðarins við og segir ennfremur: \"Við höfum skipað okkur í hóp lýðræðisríkja sem byggja á sameiginlegum skilningi á frelsi og mannúð.\"