Ragnheiður Elín Árnadóttir ráðherra var gestur Þjóðbrautar í morgun. Hún hafnaði þar að við séum eftirbátar annarra þjóða, til dæmis Norðurlandaþjóðanna, í mörgu, svo sem menntamálum, heilbrigðismálum og öðru.
Við stöndum þeim jafnfætis eða framar á öllum sviðum, sagði ráðherrann.
Ragnheiður Elín sagði núverandi ríkisstjórn hafa bætt vel í þar sem skorið var niður eftir hrunið. Hún sagði ákvarðnir ríkisstjórnarinnar hafa fært okkur á annan stað en við vorum á.