Stolið frá agli í nótt: „ég keypti ekki ódýrustu gerð“

Egill Helgason sem stýrir Silfrinu greinir frá því á Eyjunni að hann hafi orðið fyrir barðinu á þjófum síðastliðna nótt. Á hverju ári, þegar fer að vora hefur Egill farið með reiðhjólið sitt á reiðhjólaverkstæðið Borgarhjól þar sem hann lætur dytta að því og smyrja það.  

„Svo hjóla ég smá, en yfirleitt fer hjólið aftur inn i skúr – sem tákn um fyrirheit sem ekki rættust. En stundum hugsar maður, mikið væri gott og skemmtilegt að hjóla meira,“ segir Egill sem minnir að reiðhjólið sé að gerðinni Trek 2000 sem hann keypti af verkalýðsforingjanum Ragnari Þór Ingólfssyni sem þá starfaði í Erninum sem verslunarstjóri. Egill segir:

„Hjólið kostaði alveg skildinginn – ég keypti ekki ódýrustu gerð.“

Egil bætir við: „En nú ber svo við að hjólinu var stolið í nótt. Einhver hefur brotist inn í skúrinn sem er á lóðinni hjá mér og tekið Trek-hjólið góða og reyndar líka hjól konu minnar.“

\"\"

Þá segir Egill að lokum: „Ég segi ekki að hjólreiðar mínar minnki að marki við þetta, þær hafa ekki verið í frásögur færandi. En hin árlega ferð niður á Hverfisgötu verður ekki farin þetta árið.“