Stofnar eigin hjálparsamtök eftir erfiðan aðskilnað

Tinna Guðrún Barkardóttir, sem áður vann hjá góðgerðarsamtökunum Það er von, hefur yfirgefið hópinn eftir „erfitt uppgjör“ sem hún segir hafa farið yfir velsæmismörk hennar. Hún hefur nú stofnað nýtt fyrirtæki undir nafninu Sterk saman ásamt Elínu Báru Lúthersdóttur. Frá þessu var greint á mbl.is.

Tinna segir slæmt starfsumhverfi hafa ráðið því að hún fór á eigin vettvang með starfsemina. „Það sem ég er að vinna úr núna er slæmt vinnu­um­hverfi á síðasta vinnustað þar sem ég vann. Það má ekki gleyma því að hægt er að fara yfir mörk og gas­lýsa í vinnu og vináttu, þannig að maður ber skaða af líkt og í öðrum aðstæðum.“

Samkvæmt lýsingu á Facebook-síðu nýja fyrirtækisins hyggst það bjóða upp á „víðtæka þjónustu í ráðgjöf og fræðslu, með starfandi einstaklings-, fjölskyldu- og vímuefnaráðgjafa“, auk þess sem áætlað er að samtökin gefi út vikulega hlaðvarpsþætti.