Gunnar Smári Egilsson er einn harðasti gagnrýnandi „ofurlauna“ um þessar mundir. Hann hneykslast einnig á launamismuni forstjóra og launafólks. Í ljósi þessa er athyglisvert að skoða staðreyndir um starfskjör Gunnars Smára frá árinu 2005 þegar hann var forstjóri fjölmiðlafyrirtækisins Dagsbrúnar.
Samkvæmt tekjublaði Frjálsrar verslunar sumarið 2006 (6. tbl. 2006) námu launatekjur Gunnars Smára á mánuði árið 2005 kr. 2.438.000. Skv. breytingum á launavísitölu jafngildir það um 6 milljónum króna á núverandi verðlagi.
Forstjóri Dagsbrúnar, Gunnar Smári Egilsson, hafði þá skv. Frjálsri verslun heldur hærri laun en Rannveig Rist forstjóri ÍSALS, forstjóri Marels, forstjóri OLÍS og forstjóri Heklu. Árið 2005 hafði Gunnar Smári svipuð laun og forstjóri Símans og Finnur Ingólfsson forstjóri VÍS.
Árið 2005 voru ráðherralaun um ein milljón króna á mánuði skv. samantekt Frjálsrar verslunar. Það ár hafði Gunnar Smári forstjóri Dagsbrúnar því meira en tvöföld ráðherralaun.