Stofnuð hefur verið Facebook-síða sem ber heitið „Gegn það er von.“ Er hún stofnuð til höfuðs Facebook-síðu sem Hlynur Kristinn Rúnarsson stofnaði. Segir Hlynur að síðan sé hugsuð til að hjálpa fólki. Sjálfur var Hlynur í mikilli neyslu og var meðal annars dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að smygla fíkniefnum í Brasilíu.
Líkt og segir á vef DV hefur forvarnarstarf Hlyns helst verið gagnrýnt á þeim forsendum að örstutt er síðan hann hætti neyslu. Hann hefur verið frá fíkniefnum í aðeins fjóra mánuði og aðeins þremur mánuðum eftir að hann hætti neyslu fór hann inn í framhaldsskóla með fræðslu handa nemendum. Þá er í nýjasta tölublaði Stundarinnar viðtöl við konur sem saka Hlyn um hrottalegt ofbeldi. Stofnun síðunnar Gegn Það er von kemur í kjölfar þessara ásakana.
DV ræddi við aðstandendur síðunnar „Gegn það er von.“
„Það eru margar stelpur sem eiga það sameiginlegt að vera í molum eftir Hlyn þar sem hann beitti þær andlegu, líkamlegu og kynferðisofbeldi svo heldur hann uppi síðunni „Það er von“ og segist ekki vera ofbeldismaður. Hann hefur ekki tekið ábyrgð á því sem hann hefur gert og skrifar pistil til þess að upphefja sjálfan sig á þeirra kostnað, að þær séu bara að halda í gremju og reyna skemma fyrir honum. Stelpurnar sem eru að opna sig og fá ekki þann stuðning sem þarf.“