Stöðva samninga um viðbyggingu stjórnarráðs

Kærunefnd útboðsmála hefur komist að þeirri niðurstöðu að verulegar líkur séu á því að framkvæmd hönnunarsamkeppni vegna viðbyggingar við stjórnarráðshúsið í Lækjargötu hafi verið ólögmæt, sem og val á vinningstillögu. Því hefur samningsgerð Framkvæmdasýslu ríkisins og forsætisráðuneytisins við vinningshafana, Kurt og Pí ehf., verið stöðvuð. 
 

Framkvæmdasamkeppnin var auglýst í apríl 2018. Leitað var að tillögum um hönnun viðbyggingar við stjórnarráðshúsið við Lækjargötu í Reykjavík. Í samkeppnislýsingu kom fram að dómnefnd myndi leggja áherslu á tiltekin atriði og veita fyrstu, önnur og þriðju verðlaun. Í kjölfarið væri ætlunin að ganga til samninga um áframhaldandi hönnun hússins við höfunda þeirrar tillögu sem dómnefnd mælti með.

Nánar á

http://www.ruv.is/frett/stodva-samninga-um-vidbyggingu-stjornarrads