Stöðugt færri landsmenn fara í bíó

Aðsókn að íslenskum kvikmyndahúsum hefur dregist saman um tvö til þrjú prósent á ári frá 2009, eða samtals um sextán af hundraði á rétt röskum hálfum áratug.

Ástæðu þessa má einkum rekja til ólöglegs niðurhals á kvikmyndum og efnisveitna sem gera almenningi auðveldara um vik en áður að nálgast bíómyndir af öllu tagi eins og glögglega kemur fram í samantekt Markaðarins í dag. 

\"Almennt hefur aðsókn dregist saman,\" segir Hallgrímur Kristinsson stjórnarformaður Félags rétthafa í sjónvarps og kvikmyndaiðnaði við miðilinn.

Þá hefur gestum á hverja sýningu líka fækkað úr 85 að meðaltali árið 2009 í 57 á þessu ári.

Hallgrímur vill að stjórnvöld grípi til frekari aðgerða gegn ólöglegu niðurhali en segir að þar hafi verið talað fyrir daufum eyrum.