Stöðugleikaskattur gefi 1000 milljarða

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, segist vilja hafa boðaðan stöðugleikaskatt vegna losunar fjármálahaftanna sem hæstan og gefi ríkissjóði sem mestar tekjur.

 

Þetta sagði þingkonan á Þjóðbraut Páls Magnússonar á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld þar sem hún sat fyrir svörum um ríkisfjármálin. Vigdís kvaðst ekki enn hafa séð væntanlegt frumvarp fjármálaráðherra um stöðugleikasskattinn á þrotabú gömlu bankanna, en hún vilji hafa skattinn sem hæstan - og nefndi að hann gæti hæglega numið 40-50% af kröfunum. Það gæti gefið ríkissjóði 800 til 1000 milljarða króna.

 

Og Vigdís lá ekki á svari sínu þegar spurt var hvernig verja ætti þessum fjármunum; hverja einustu af þessum krónum ætti að nýta til að lækka skuldir ríkissjóðs. 

 

Skoða má viðtalið við Vigdísi í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is og einnig klippur úr því á forsíðu vefjarins.