Stöðugleikaframlag gróflega ofmetið

Ólafarnir leiddu í ljós í þætti sínum á Hringbraut á fimmtudagskvöld, með tölum upp úr greinargerð Seðlabanka Íslands, að ætlað stöðugleikaframlag slitabúa föllnu bankanna sýnist gróflega ofmetið í kynningu stjórnvalda.

Þeir tóku dæmi af Landsbankanum sem sýnir að raunverulegt framlag hans er í mesta lagi 5 til 10% af því sem haldið er fram í kynningu á málinu.

Ólafarnir eru frumsýndir öll fimmtudagskvöld á Hringbraut, en þar greina hagfræðingarnir helstu efnahags- og þjóðmál, en þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar.