Stöð 2 og Bylgjan flytjast úr Skaftahlíð á Suðurlandsbraut innan skamms. Áætlað er að ljúka flutningunum á þessu ári.
Fjölmiðla- og fjarskiptafyrirtækið Fjarskipti hf. hefur náð samningum við fasteignafélögin EIK og Reiti um framtíðarhúsnæði sameinaðrar starfsemi. Fjarskipti hf. eru í dag með allt húsnæðið að Suðurlandsbraut 8 til afnota og munu nú bæta við sig rými í hluta hússins að Suðurlandsbraut 10, undir starfsemi fréttastofu og íþróttadeildar. Þar með verður hægt að sameina alla starfsemi á sama stað á árinu, þar með talin mynd- og hljóðver, að því er kemur fram í frétt Viðskiptablaðsins.
Markmiðið er að tilfærsla núverandi eininga sem hýst eru á Suðurlandsbraut 8 hefjist á allra næstu vikum. Uppsetning hljóð- og myndvera getur svo hafist strax í kjölfarið, en þangað flyst starfsemi Stöðvar 2 og útvarpsstöðvanna Bylgjunnar, FM 957 og X-ið.
Stefnt er að því að stór hluti miðla, meðal annars útvarpsstöðvar, geti hafið flutninga í maí 2018. Aðstaðan að Suðurlandsbraut 10 ætti að vera tilbúin til notkunar í haust.