Stjórnvöld halda uppi háum vöxtum

Langtímavandi Íslendinga á rætur í ósamkeppnishæfri mynt. Hún kostar einfaldlega hærri vexti eins og reynslan sýnir. Þetta segir Þorsteinn Pálsson í nýjum pistli sínum á hringbraut.is.

Eins og fram kemur í fyrri frétt vefsiins um þennan pistil Þorsteins er hann að þar að gagnrýna stjórnarþingmenn fyrir að skamma Seðlabankann fyrir að hækka vexti, vanalega tali stjórnarandstöðuþingmenn á þann veg en ekki stjórnarliðar. En þessi gagnrýni hitti þá sjálfa fyrir; síðasta vaxtahækkun og allar þær sem eru boðaðar á hausti komanda séu afleiðing stjórnarathafna, svo og stefnuleysis í peningamálum. Gagnrýni á Seðlabankann sé því gagnrýni á ríkisstjórnina.

Þorsteinn skrifar: \"Í greinargerð Seðlabankans fyrir síðustu vaxtahækkun og boðuðum hækkunum á næstu mánuðum eru þrjár orsakir nefndar: Launahækkanir umfram framleiðnivöxt þjóðarbúsins, ófjármagnaðar aðgerðir í ríkisfjármálum og hætta á óvarlegri ráðstöfun froðupeninga úr slitabúum.\"

Hann segir uppsprettu þessara vaxtahækkana liggja býsna nærri ríkisstjórninni sjálfri ef marka megi það lögbundna mat Seðlabankans á efnahagshorfum sem fyrir liggur. Enginn hafi lagt fram annað vandað faglegt mat af því tagi.

\"Í raun á almenningur rétt á því að þungavigtartalsmenn stjórnarmeirihlutans á Alþingi svari fyrst skýringum Seðlabankans áður en þeir sletta skyrinu.  Til þess að það verði gert málefnalega þarf tilvísanir í nýtt mat á efnahagshorfum eða tillögur um ákveðnar breytingar á þeim lögum sem bankinn starfar eftir.\"

Pistil Þorsteins í heild sinni er hægt að lesa hér: