„Ég tel líka rétt að Samfylkingin beini spjótum sínum að Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum, spillingarflokkunum, en í minni mæli að Vinstri grænum, þó að þeir hafi um stund villst af leið,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, í ávarpi á landsfundi flokksins í dag.
„Þeir eru okkar samherjar og geta orðið það fyrr en okkur órar fyrir því ég hef enga trú á að þessi ríkisstjórn sitji út kjörtímabilið.“
Jóhanna sagði að óþolandi væri fyrir íslenska þjóð að Ísland væri talið spilltast Norðurlanda vegna fárra einstaklinga sem ekki gætu haft taumhald á græðgi sinni; „Það sem veldur vonbriðgum er að stjórnvöld virðast ekkert hafa lært af hruninu. Þau hafa frekar farið skref aftur á bak en áfram, verulegir siðferðisbrestir og leyndarhyggja virðist á litlu undanhaldi og græðgin hefur ekkert hopað fyrir réttlátara samfélagi. Siðrof milli þings og þjóðar er algjört og þar höfum við verk að vinna.“
Jóhanna sagði fátækt í samfélaginu enn allt of mikla og að það væri til skammar hversu mörg börn byggju við mikla fátækt: \"Og það er líka til skammar að það taki fjölda lífeyrisþega tvö ár að ná sömu fjárhæð til framfærslu og Ásmundur Friðriksson hefur bara í bílastyrk skattfrjálst á einu ári.“
Að mati Jóhönnu er Samfylkingin aftur á leið að verða burðarflokkur í íslenskum stjórnmálum og sér hún mikil sóknarfæri.