Þorsteinn Viglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að aðkoma stjórnvalda að lausn síharðnandi kjaradeilna í landinu geti fyrst og fremst falist í hækkun persónuafsláttar annars vegar og lækkun húsnæðiskostnaðar hins vegar.
Þetta kom fram á Þjóðbraut með Páli Magnússyni í gærkvöld, en gestir hans auk Þorsteins voru Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands og Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR. Að óbreyttu stefnir í að allt að 70 þúsund manns verði komin í allsherjarverkfall eftir um það bil mánuð, en líkur á því fara vaxandi með hverjum deginum. Um 50 þúsund þeirra tilheyra Flóabandalaginu og VR, sem hafa nú með sér samstarf í verkfallsmálum sem Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir einstakt í nærri 100 ára sögu Alþýðusambandsins. Bent hefur verið á að kjaradeilan nú sé sú erfiðasta frá 1977.
Hægt er að sjá allan þáttinn undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is og klippur úr honum á forsíðu vefsins.