Stjórnvöld gefa skít í vernd og friðun

Ómari Ragnarssyni sjónvarpsmanni og náttúruverndarsinna óar við virkjunargleði stjórnvalda sem boða að hans mati stóraukinn hernað gegn náttúru landsins: „Nú á að reisa virkjana- og mannvirkjabelti þvert yfir hálendið, fara í virkjanir í fordyri Landmannalauga,við Langjökul, í Jökulsánum í Skagafirði, í Bjarnarflagi á austurbakka Mývatns svo að eitthvað sé nefnt, og gefinn skítur í vernd eða friðun, hvar sem menn telja það henta," segir Ómar í ítarlegri úttekt Stundarinnar sem nú er komið út í annað skipti og leggur drjúgan hluta blaðsins undir þetta umfjöllunarefni. Hægt er einnig að nálgast hluta hennar á vefsvæði fjölmiðilsins, stundin.is.


Ómar er afar ómyrkur í máli í umfjöllun Stundarinnar: "... miðað við þau opinberu áform um virkjanir, stóriðju (orkufrekan iðnað) og sæstreng, sem mannvirkjafíklarnir hafa þegar upplýst um, blasir við hvað þeir ætla sér: Undir yfirskini hófsemdar ætla þeir að reka hernaðinn gegn landinu og einstæðri náttúru þess allt til enda og stilla öllum, sem andæfa því, upp sem öfgamönnum." 


Hann rifjar upp samtal sitt við ráðamann fyrri tíðar úr Framsóknarflokknum: "Við verðum að virkja stanslaust, annars verður kreppa og atvinnuleysi,“ sagði Finnur Ingólfsson við mig 1999. „En þegar búið verður að virkja allt virkjanlegt, hvað gerist þá?“ spurði ég.


Svar Finns var skýrt: „Þá verðum við dauðir og það verður verkefni kynslóðanna sem þá taka við.“ 


Sem fyrr greinir er hér vitnað til ítarlegrar umfjöllunar Stundarinnar, sem kemur út mánaðarlega um það sem blaðið kallar hernað gegn landinu.