Stjórnvöld, fjölmiðlar og fólk blekkt

Í fréttatilkynningu rannsóknarnefndar Alþingis segir þetta:

 Rannsóknarnefnd Alþingis hefur sannreynt að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser var aldrei í reynd fjárfestir í Búnaðarbankanum þegar 45,8 prósent hlutur ríkisins í honum var seldur í janúar 2003, ólíkt því sem haldið var fram allt frá upphafi. Það er afdráttarlaus niðurstaða rannsóknarnefndar Alþingis að stjórnvöld hafi skipulega verið blekkt í aðdraganda og kjölfar sölunnar. 

Aðkoma bankans var lykilatriði í því að S-fjárfestingahópurinn fengi að kaupa bankann.

Kjartan Bjarni Björgvinsson sem fór fyrri nefndinni og Finnur Þór Vilhjálmsson, starfsmaður nefndarinnar kynntu skýrsluna skömmu fyrir hádegi í dag.

Fjallað verður um málið í Þjóðbraut annað kvöld á Hringbraut.