Stjórnvaldssekt sí ónýtt

Seðlabanki Íslands (SÍ) áfrýjar dómi Hérðaðsdóms Reykjavíkur. Í apríl felldi dómurinn úr gildi fimmtán milljóna stjórnvaldssekt sem SÍ lagði á útgerðarfyrirtækið Samherja fyrir meint brot á gjaldeyrislögum. Var SÍ einnig gert að borga allan  málskostnað eða fjórar milljónir króna.

Forstjóri Samherja segir í viðtali við Morgunblaðið að ekkert réttlæti þessa áfrýjun. Talsmenn Samherja töldu á sínum tíma SÍ hafa reitt hátt til höggsins í rannsókn og málatilbúnaði. Frá þessu er sagt á vefsíðu RÚV.    

 

[email protected]