Stjörnu-Sævar fékk boð í bólusetningu á versta tíma: „Kæri sóttvarnarlæknir…“

Stjörnuspekingurinn og umhverfisbaráttumaðurinn Sævar Helgi Bragason, best þekktur sem Stjörnu-Sævar, fékk boð í bólusetningu á allra versta tíma stjörnufræðilega séð. Sævar fékk boð í símann sinn að mæta í Laugardagshöll kl. 9:20, fimmtudaginn 10.júní til að fá Jansen bóluefnið við Covid-19.

Vandinn er sá að á sama tíma er sólmyrkvi yfir Reykjavík. Samkvæmt vef Sævars verður 70 prósent sólar myrkvuð yfir höfuðborginni. Næsti sólmyrkvi er svo ekki fyrr en í október á næsta ári, þá verður ekki nema 19 prósent myrkvi. Sólmyrkvinn er svokallaður hringmyrkvi, næsti þannig verður ekki fyrr en árið 2048.

Sævar greinir frá þessu á Twitter-síðunni sinni og segir: „Ehh, kæri sóttvarnarlæknir, það er sólmyrkvi á sama tíma!“

Sævar segir að það stefni reyndar í rigningu svo eflaust skiptir þetta engu máli.