Stjörnu-Sævar fær reglulega myndir af „fljúgandi furðuhlutum“

Stjörnuspekingurinn og umhverfisverndarsinninn Sævar Helgi Bragason segir að hann fái reglulega myndir frá fólki sem telur sig hafa séð fljúgandi furðuhluti. Hann segir að það takist alltaf að finna eðlilegar skýringar á öllu sem sést á himni.

Líkt og greint var frá í Fréttablaðinu í dag er engin skrá til yfir fljúgandi furðuhluti hér á landi. Mikil umræða hefur verið um fljúgandi furðuhluti í Bandaríkjunum eftir að varnarmálaráðuneyti og fyrrverandi forseti viðurkenndu að til væru skrár yfir hluti sem engin leið væri að útskýra. Telja margir að þar séu jafnvel geimverur að heimsækja jörðina.

Sævar Helgi segir á Twitter að það sé eðlilegt að slík skrá sé ekki til á Íslandi. „Það sést sjaldan eitthvað sem ekki tekst að skýra. Ár hvert fæ ég myndir frá fólki sem sér eitthvað á himni og vantar skýringu,“ segir hann. „Alltaf reynist það hversdagslegt: Flugvélar, gervitungl, stjörnuhröp, ljósluktir, reikistjörnur.“