\"Ég hef sagt þetta áður og tel nú í ljósi frétta ástæðu til að segja þetta aftur og ganga jafnvel enn lengra og segja, að nú finnst mér við hæfi í ljósi aðstæðna að forsetinn tjái sig af kurteisi og virðingu við þjóðina um þetta mál og - dragi framboð sitt tilbaka. Það er það minnsta sem hann getur gert,\" segir Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, stjórnsýslufræðingur og kennari við HÍ.
Fyrir nokkrum dögum þegar aflandsmál forsetahjónanna voru fyrst afhjúpuð skrifaði Sigurbjörg færslu á facebook þar sem hún heldur fram að mikilvægum ábyrgðarstörfum í þágu almennings fylgi orðsporsáhættur. \"Þessi tegund áhættu gerir kröfu til háttsemi og framkomu sem er viðeigandi og hæfa aðstæðum hverju sinni. Þetta á vel við í málinu sem varðar tengsl fjölskyldufyrirtækis forsetafrúarinnar við aflandsfélag.\"
Hún segir eitt ef Ólafur Ragnar Grímsson hafi ekki vitað um tengsl fjölskyldufyrirtækis eiginkonunnar við aflandsfélag. Annað varði hvað hæfi þjóðhöfðingja að gera við aðstæður eins og nú.
\"Sem þjóðkjörinn forseti ber honum fyrst og fremt að gæta að því trausti sem honum hefur verið sýnt með því að vera kjörinn forseti íslensku þjóðarinnar. Því fylgir ábyrgð gagnvart þjóðinni og sú skylda að gæta að orðspori forsetans á alþjóðavettvangi. Eiginkona hans, hver sem hún er, þarf að lúta þeim skilyrðum sem slíkt traust gerir kröfu til og taka tillit til ábyrgðarinnar sem fylgir hlutverki þjóðhöfðingjans.
Í ljósi þeirra aðstæðna sem nú eru uppi í kjölfar uppljóstrana úr Panamaskjölunum hefði verið skynsamlegt og ábyrgt af forsetanum að láta strax kanna gaumgæfilega hvort fyrirtæki eða fjölskylda eiginkonunnar hefðu einhver tengsl, í nútíð eða fortíð, við aflandsfélög. Þá hefði forsetinn getað komið fram með viðeigandi hætti og gert grein fyrir niðurstöðum þeirrar leitar og eftir atvikum slíkum tengslum af fyrra bragði, útskýrt málavöxtu og tjáð hug sinn um það í ljósi aðstæðna. Það hefði verið við hæfi og meira viðeigandi fyrir þjóðhöfðingja, en þetta “No, no, no, no, no, that is not going to be the case” viðtal forsetans á CNN, sem nú gerir hann að athlægi.
Þetta sæmir ekki forseta þjóðar. Nú reynir á forsetann að svara fyrir þessa vandræðalegu uppákomu gagnvart þjóð sinni,\" skrifar stjórnsýslufræðingurinn sem telur eins og fyrr segir að Ólafur verði að draga framboð sitt til baka.
Forseti Íslands hefur enn ekki veitt fjölmiðlum viðtal vegna málsins. Í svarpóstum við fyrirspurnum segir Ólafur Ragnar að hvorki fyrr né nú hafi hann vitað nokkuð um aflandsmál eiginkonu sinnar og fjölskyldu.