Að mati Ríkisendurskoðunar er ábyrgðar- og hlutverkaskipan innan stjórnsýslu ferðamála óskýr og ekki að öllu leiti í samsræmi við gildandi lög um skipan ferðamála.
Þótt ferðaþjónustan hafi fengið aukið vægi innan Stjórnarráðsins teygir stjórnsýsla málafokkisns sig enn víða um stjórnkerfið og hefur snertifleti í flestum ráðuneytum.
Þetta og margt annað kemur fram í útkominni skýrslu Ríkisendurskoðunar sem kynnir þar niðurstöður og ábnendingar.
Með tilliti til þess að vöxtur ferðaþjónustunnar hefur haft gríðarleg áhrif á flesta þætti íslensks þjóðlífs má finna að því að stjórnvöld hafa ekki sett sér nýja sameiginlega stefnu um málelfi ferðaþjónustunnar til framtíðar.
Því kemur Ríkisendurskoðun með ábendingar:
- Endurskoða þarf lög og marka stefnu um skipan ferðamála;
- Endurskoða þarf skipulag verkenfa innan stjórnsýslu ferðamála;
- Skýra þarf hlutverk Stjórnstöðvar ferðamála og stöðu gagnvart eiginlegum stjórnsýslustofnunum.