Pólitík, kál og fjársvelti

Það verður annasamt hjá Þjóðbrautinni á morgun. Í hádegisútvarpinu verður talað um grænmeti og háskóla og í sjónvarpsþættinum annað kvöld verður talað um vistvænar vörur og stjórnmálin.

Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri verður í viðtali í hádegisþættinum. Þar verður rætt um að í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er ekki gert ráð fyrir aukningu á fjárveitingum til háskóla landsins næstu fimm árin. Framboð á námi og þjónustu háskóla landsins er því í verulegri hættu vegna fjárskorts. Háskólafólk hefur þungar áhyggjur. Háskólinn á Akureyri verður þrjátíu ára á næsta ári og á þeim tímamótum verður, að óbreyttu, hans hlutverk að verjast gegn fjárveitingavaldinu.

Íslenskir grænmetisbændur selja allt það sem þeir framleiða. Neytendur vilja íslenskt grænmeti. Formaður þeirra Knútur Rafn Ármann, í Friðheimum, verður gestur í hádegisþættinum og ræðir um þá stöðu sem og hvort neytendur efist nú um heilindi vörunnar eftir Brúneggjarmálið.

Knútur Rafn Ármann verður einnig gestur í sjónvarpsþættinum annað kvöld, og þá með Gunnlaugi Karlssyni, sem er framkvæmdastjóri Sölufélagi garðyrkjumanna. Þeir munu tala um vistvæna rætkun og afstaða garðyrkjabænda til hennar.

Stefanía Óskarsdóttir, stjórnmálafræðingur við Háskóla Íslands, verður einnig gestur annað kvöld. Stjórnmálin hér heima, nýafstaðnar forseta kosningar í Austurríki verður á málaskránni. Og jafnvel fleira.

Sjónvarpsþáttur Þjóðbrautar er á dagskrá klukan 21:00 annað kvöld og hádegisþátturinn er í útvarpi Hringbrautar klukkan 12:30.

Þessar eru tíðnir útvarsins og að auki er hægt að hlusta á hringbraut.is.

89,1 - Reykjavík
91,7 - Blönduósi
91,1 - Sauðárkróki
89,9 - Egilsstöðum
89,9 - Selfossi
87,7 - Akureyri