Kári Stefánsson sagði rétt í þessu, í Þjóðbraut á Hringbraut, að best færi að stjórnmálflokkarnir, geri með sér sáttmála um hvað beri að gera í heilbrigðismálum að loknum þingkosningum.
Þannig verði aðgerðir í heilbrigðismálum ekki kosningamál. Hann segir brýnt að gera það sem þarf að gera. Það sá skylda samfélagsins.
Kári vísar til sterkrar stöðu ríkissjóðs og að þar séu nægir peningar til framkvæmda. Til að byggja, til tækjakaupa og til að mennta fólk og fylla nýjan spítala af góðu og menntuðu fólki.