Aðalheiður Ámundadóttir, lögfræðingur og starfsmaður þingflokks Pírata, sagði á Þjóðbraut í morgun, að stjórnmálin dragi fram það versta í fólki.
Aðalheiður leiddi lista Pírata í norðausturkjördæmi við síðustu kosningar en náði ekki þingsæti. Auk þess að hafa starfað fyrir þingflokkinn hefur hún setið, sem fulltrúi Pírata, í stjórnarskrárnefnd.
Aðalheiður segist engann áhuga hafa á að starfa áfram í stjórnmálum. Hún sagði neikvæðni vera í þinghúsinu og að hún segist ekki vera rétta manneskjan til að starfa í því andrúmslofti.
Talið barst einnig að þjóðhagsráði og skipan þess. „Stundum virðist vonlaust að koma því að hvað konur geta,“ sagði Aðalheiður.
Steingrímur Sævarr Ólafsson, sem var einnig þátttakandi í umræðunni sagði karla oftast raða sér í sætin. Hann benti einnig á að stundum þurfi að reka á eftir konum til taka þátt, og benti á Pírata í norðausturkjördæmi, þar sem verulegur kynjahalli meðal frambjóðenda.