Stjórnmálamenn þori ekki í harmageddon til að ræða stöðu láglaunakonunnar

Máni Pétursson, útvarpsmaður og annar þáttastjórnenda Harmageddon, segir að aldrei hafi reynst eins erfitt að ná í stjórnmálamenn. Þeir séu allir uppteknir þegar þeir séu beðnir um að mæta í þáttinn til að ræða stöðu láglaunakonunnar. DV greindi fyrst frá.

„Í sögu þáttarins hefur aldrei verið eins erfitt að ná í stjórnmálamenn . Þeir eru allir uppteknir þegar við biðjum þá að ræða stöðu láglaunakonunnar. Þess vegna þurftum við að ræða þetta sjálfir,“ skrifar Máni á hópi Sósíalistaflokksins á Facebook.

Þar vísar hann í umræður á milli hans og Frosta Logasonar í Harmageddon gærdagsins. Þar fóru þeir hörðum orðum um stjórnmálamenn vegna þessarar hegðunar.

„Við erum að tala um að það heyrist ekki í neinum stjórnmálamanni, það er hægt að telja á fingrum annarrar handar stjórnmálamenn í þessu samfélagi sem hafa skrifað Facebook-status um þetta mál.

Núna er Samfylkingin búin að taka upp heilt vídjó þar sem Logi Einarsson er að tala um að það sé verið að vísa flóttamanni hér út. Það er gott og blessað mál en við erum að tala um stærsta hóp láglaunakvenna á Íslandi,“ sagði Máni. Hann segir stjórnmálamenn hræsnara.

Einungis hafi tveir af tíu til tólf stjórnmálamenn, á þingi og í borg, mætt til að ræða málið. Það hafi verið þeir Þorsteinn Víglundsson og Brynjar Níelsson.

„Þessir stjórnmálahræsnarar, ég verð reiður þegar ég segi þetta, sem eru talandi um jafnrétti, mæta hingað og tala um jafnrétti og koma vel fram við konuna, kalla sig femínista. Þessu fólki er drullusama um láglaunakonur.[…]

Veistu Frosti, ég ætla líka að auglýsa eftir femínistunum, þessum hörðu femínistum sem eru tilbúnar að vera brjálaðar yfir að einhver sagði eitthvað og gerði hitt. Ég er ekki að sjá þær nógu duglegar á Twitter að tala um það hvernig staðan er fyrir láglaunakonu.“

Frosti svarar honum: „Samfylkingin á að eiga djúpar rætur í þessum hópi vinnufólks […] Hitt sjónarmiðið er að fólk hefur áhyggjur af launaskriði, höfrungahlaupi, verðbólgu og svo framvegis.“