Leiðtogar stjórnmálaflokkanna eru samála Festu um að íslensk fyrirtæki gegni lykilhlutverki og beri ríka ábyrgð gagnvart samfélaginu. Þetta er samkvæmt könnun sem Festa framkvæmdi.
Samfélagsábyrgð felst í því að fyrirtæki axli ábyrgð á áhrifum sínum á samfélagið og umhverfið og snertir velflesta þætti í starfsemi fyrirtækja. Viðskiptasiðferði og umhverfismál sem og vinnuvernd og jaf´nrétti. Og aðgerðir geng spillingu. Þetta eru lykilhugtök þegar kemur að samfélagsábyrgð.
Könnunin sýnir jafnframt að stjórnmálaleiðtogar telja að íslensk fyrirtæki hafi jákvæð áhrif á samfélagið.
Hægt er að lesa nánar um þetta á vef Festu: http://festasamfelagsabyrgð.is/2017/10/25/stjornmalaleidtogar-sammala-festu/