Stjórnmálafræðingur: breytt mál


\"Það þarf ekkert að koma á óvart að Birgitta krefjst þessa, málið hefur breyst þannig að hafi stjórnarandstaðan verið í vafa um hvað hún ætti að gera þá hefur hún nú enn frekari ástæðu til að krefjast aðgerða, þetta hlýtur að hafa áhrif,\" segir Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri í samtali við Hringbraut í morgun um  tengsl forsætisráðherra Íslands, Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, við aflandsstarfsemi.
Hringbraut greindi frá því fyrir stundu að Birgitta Jónsdóttir, Pírötum, hefði farið fram á að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segi af sér embætti fyrir þingfund klukkan 15 í dag. Ritstjóri Kjarnans, Þórður Snær Júlíusson, telur ekki spurningu hvort heldur hvenær Sigmundur Davíð segi af sér. Það kom fram í viðtali við Óðin Jónsson á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun. Að Sigmundur Davíð skyldi leyna eigin eignarhaldi á Wintris eftir að hann varð þingmaður er eitt af því sem gagnrýnendur telja ígildi samningsrofs. Þá sagð hann fréttamanni ósatt áður en hann gekk út úr viðtali við sænskan sjónvarpsblaðamann. Eftir því sem fram hefur komið fór aðstoðarmaður hans, Jóhannes Þór Skúlason, fram á að viðtalið yrði ekki sýnt og vildi óformlegan fund um málið sem hvergi mætti koma fram.
Grétar Þór er nýkominn til Íslands eftir vinnuferð. Hann segist vilja kynna sér málið betur áður en hann metur stöðu Sigmundar Davíðs en segir að gærdagurinn hljóti að hafa áhrif þótt ekki sé til annars en að ramma inn andstöðu minnihlutans á Alþingi og kröfu um róttækar aðgerðir.
Fjölmenn mótmæli hafa verið boðuð á Austurvelli klukkan 17 í dag. Mál Sigmundar Davíðs þykir heimsfrétt í tugum erlendra fjölmiðla og að jafnaði í hópi þriggja stærstu frétta sem fluttar hafa verið af lekanum í Panamaskjölunum svokölluðu.