Vinstri græn mælast með mest fylgi íslenskra stjórnmálaflokka, eða 24,7 prósent. Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur lækkað um tæp 2 prósentustig frá síðustu könnun MMR sem lauk 4. september 2017 og mældist nú 23,5 prósent. Fylgi Samfylkingarinnar (10,4 prósent) hækkaði á milli mælinga og fylgi Pírata (10,0 prósent) lækkaði milli mælinga. Athygli vekur að fyrirhugaður stjórnmálaflokkur Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar mælist með stuðning 7,3 prósent kjósenda og mælist þar með stærri en Viðreisn, Björt framtíð og Framsóknarflokkurinn - sem mælist með 3ja prósenta lægra fylgi nú en var í upphafi mánaðarins.
Stuðningur við ríkisstjórnina lækkaði milli mælinga. Kváðust 22,5 prósent styðja ríkisstjórnina samanborið við 29,5 prósent í síðustu könnun.
Niðurstöðurnar eru þessar í heild:
Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 10,4% og mældist 9,6% í síðustu könnun.
Fylgi Pírata mældist nú 10,0% og mældist 13,8% í síðustu könnun.
Fylgi Flokks fólksins mældist nú 8,5% og mældist 9,1% í síðustu könnun.
Fylgi Framsóknar mældist nú 6,4% og mældist 9,7% í síðustu könnun.
Fylgi Viðreisnar mældist nú 4,9% og mældist 7,3% í síðustu könnun.
Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 2,5% og mældist 3,0% í síðustu könnun.
Fylgi annarra flokka mældist 1,7% samanlagt.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði \"einhvern hinna\" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 87,0 prósent sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,1%), myndu skila auðu (3,6%), myndu ekki kjósa (1,6%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,7%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu kannanir þar á undan.