Stjórnmál og þjóðfundur í beinni

Linda Blöndal og Sigurjón M. Egilsson stýra Þjóðbraut í kvöld. Eðlilega verður fjallað um stjórnmálin. Linda fær til sín tvo gesti; Viktor Orra Valgarðsson og Álfheiði Ingadóttur og Birgitta Jónsdóttir kemur til Sigurjóns.

Staða stjórnmálanna er spennandi og óvissan er mikil. Hvað hefur gerst og hvað mun gerast? Þessar spurningar og margar aðrar verða á dagskrá Þjóðbrautar, sem er á dagskrá klukkan 21:00.

Hlustendum er hins vegar boðið að segja sína skoðun í hádegisþætti Þjóðbrautar í útvarpi Þjóðbrautar, á fm 89.1 í síma 445 0891.